02.07.2006 15:14:44 / dóradóra

Skítur

Bloggfærslur alfarið fluttar um set.

http://www.blog.central.is/les-tartes

of súrt að vera með það sama alltaf á báðum síðunum.

þessi verður óvirk um ókomna framtíð


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.06.2006 11:45:51 / dóradóra

vacationvacationvacation

Þessi síða er komin í smá sumarfrí... svona þangað til ég er búin að vinna (mig grunar að það sé ekki langt í það)

Hilsen,

Dóra:haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.05.2006 17:37:35 / dóradóra

goooosh

mér datt svolítið of seint í hug að fara ða blogga.... oh, well...

er í vinnunni og er að bíða eftir að hann Sigurjón tannlæknir klári svo ég komist heim.

Við Sigurjón erum læk ðiss *krækja saman puttunum og gera kúl svip*

Njee, hann er tannlæknanemi og fær að vera hérna, greyið.

Um daginn missti hann heilt glas af vatni á gólfið og ég þurfti að þrífa það upp. Ég þóttist vera geðveikt pirruð og kallaði hann helvítis sóða.

Ég hef aldrei á ævinni séð nokkurn mann skammast sín jafn mikið. Hann varð geðveikt vandræðalegur og baðst margoft afsökunar og ætlaði að fara að hjálpa mér að þurrka þetta.

Það var svolítið fyndið.

Sautján ára stelpa að segja þrítugum manni til syndanna...

ég var bara að grínast í honum....

Í morgun ætlaði ég að fá mér að borða... þar sem brauðið var búið fór ég til pabba og hann sýndi mér súpuskúffuna.

Þar kenndi ýmissa grasa, súpu frá öllum ártölum; 2000, 2001, 2004, 2005 og þar fram eftir götunum. Ég afréð að fá mér kjúklinganúðlur (þó ég hati núðlur af öllu mínu hjarta) át helminginn og henti þeim síðan.

Þær voru samt ekkert svo útrunnar. ;)

Maður á aldrei að fá sér neitt hérna nema að líta á dagsetningarnar fyrst.

There's someone in my head but it's not me.

Ég sit hérna og hlusta á Dub side of the moon, mér finnst þessi plata alveg hreint stórkostleg!

lots and lots of tónleiks framundan ég hamingjusöm! :haha:

p.s. ég gerðist svo ómerkileg að birta þetta blogg einnig á http://www.blog.central.is/les-tartes þar sem ég er hugmyndalaus með bloggefni ;) 


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.05.2006 17:13:38 / dóradóra

rarrrrr.....

Alveg þoli ég ekki fólk sem hringir til mín og segir mér hvað ég sé mikill slugsi að hafa ekki unnið vinnuna mína. Ég veit ekki hversu oft ég hef lent í því að þurfa að útskýra að ég einfaldlega vissi ekkert af þessum verkefnum og þetta sé alfarið þeim að kenna.

Var að fá símtal frá fagstjóra í íþróttum i skólanum. Ég er semsagt með íþróttamat út af balletnum og gegn því að fá þetta mat þarf ég að skila inn einhverjum verkefnum (reyndar fimm spurningar úr einhverri bók, létt og löðurmannlegt). Hún tilkynnti mér það að ég ætti eftir að skila inn þessu verkefni (og ef ég þekki skólann rétt þá mætti ég örugglega ekkert fá einkunnir eða neitt ef ég skilaði þessu ekki inn) og það fyrir 10. mars, semsagt fyrir tveimur mánuðum síðan. Ég vissi af verkefninu og kíkti reglulega á innranetið, en ekkert komið. Svo gleymdi ég þessu og prísaði mig sæla að þurfa ekki að gera þetta.

Málið er að ég virðist alltaf gleymast í öllu svona, það er alltaf ég sem missi úr eitthvað því að kennararnir hafa ekki rænu á því að athuga einu sinni hvort allir séu með verkefnin.

Er það líka ekki svolítið skrýtið að manneskja skili verkefni tveimur mánuðum of seint? Fannst þeim þau ekkert þurfa að athuga hvort ég væri nokkuð búin að fá gögnin?

Misrétti.

Líka þegar var hringt í mig og mér tilkynnt að ég hefði verið búin að skrópa í mánuð í sænsku, núna rétt eftir áramót. Ég mundi ekki eftir að hafa verið látin vita að kennslan væri byrjuð.

Svei.

En gleðiefni, ég er kannski orðin stúdent í stærðfræði! Ef ég næ góðri lokaeinkunn, því kerlingarálkan hún Hrefna stærðfræðikennari vildi ekki leyfa mér að taka skyndiprófið því ég var í útlöndum. Svo ég fékk núllu.

Blee, ég hata skóla, ég þoli ekki að þurfa að vera læra eitthvað sem ég hef engan áhuga á. Eins og stærðfræði og raungreinar. Ég vil læra tungumál og íslensku. Bókmenntir, ekki einhverjar helvítis formúlur og vesen.

Ég bind hér með enda á leiðinlegt kvörtunarblogg.

Og ég sem ætlaði að fagna því að ég væri búin í prófum! urrrr.....

*ég er búin í prófum:haha:


» 5 hafa sagt sína skoðun

10.05.2006 03:01:25 / dóradóra

Blogg

njeee, veistu.....

» 2 hafa sagt sína skoðun

08.05.2006 21:20:50 / dóradóra

Úje

Picture 109.jpg

Ójá!

Baby

groovy

Coca cola

Mmmmm....

Kveðja

Arnar

Pétur


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.05.2006 15:10:15 / dóradóra

Þetta er ljóð:

reyndar ekki eftir mig, og reyndar er þetta ekki ljóð heldur blogg, en mér finnst það koma betur út sem ljóð ;)

Pézi hinn sterki

Ég komst að því í dag að ég er sterkur

Ég vann köttinn minn í sjómann

En æj, nú man ég,

ég á ekki kött

... skrambinn

- Pézi Pera, 2004

Sko, þetta er gott ljóð.

Skondið en um leið sorglegt. Það lýsir svekkelsinu yfir því að halda að maður sé eitthvað en komast að því síðan að það eru allt saman ranghugmyndir...

Á meðan ég skrifaði þetta flaug fluga upp í nefið á mér,

það var ekki þægilegt

Samt sem áður, ljóð eða ekkiljóð, þá er þetta góð....frásögn

Meðfylgjandi mynd er talin vera af kettinum hans Péza... æj, hann á ekki kött


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.05.2006 17:07:30 / dóradóra

Búhúhúhú....

Ég nenni ekki að læra lengur....

eeh, er ekki alveg byrjuð enn þá

og er að fara í próf á morgun og á laugardaginn.... svekkelsi...

plús það að ég keypti mér nammi til að narta í meðan ég læsi Íslendingarþættina.... en nei..... gerir Flóki sér ekki lítið fyrir og étur allt heila klabbið.

Skildi það nefnilega óvart eftir frammi og svo þegar ég kom til baka tuttugu mínútum seinna er ekki arða eftir, nema náttúrulega pokinn.... hundskvikindi.

Svo er ég látin passa hann, meðan hinir í fjölskyldunni er að "læra" sem þýðir í rauninni "vera ekki heima" svo ég sit í súpunni...

blaaaaarg, ekki sátt.

æææætla að reyna að halda áfram.... :$


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.05.2006 17:39:04 / dóradóra

Hey, ég nenni ekki að standa í þessu

ég ætla bara samt að blogga...

aðallega vegna þess að ég lofaði Arnari að taka til, og að sjálfsögðu nenni ég því ekki.

En ég ætla hér með að tilkynna að þessi síða er lifnuð við, hallelúja! Praise the lord.

nú, eða mig, það var nú ég sem vakti hana aftur til lífsins, þó hún hafi ekki verið látin nema í nokkra daga..... Hvað eru nokkrir dagar á milli vina? hm? hm? hm?

Fór í sveitina í gær með Arnari, það var meget skemmtilegt! Allt saman ágætis fólk þar á bæ :haha: Ég elska sveitina, og ég fékk að halda á pínupons lambi, það var awesome. Í meira lagi...

Hey, vó mér var að detta í hug svalt, vá, fólk þið eruð að verða vitni að einhverju stórfenglegu (eins og allt sem mér dettur í hug! "Hey! Styttum okkur leið yfir flugvöllinn!" manstu Hildur?) Nei, segi svona.

Njee, ég ætla að sauma mér buxur.... þær eiga að vera rauðar. Ég á meget awesome græna saumavél, en hún er biluð, svo ég verð að nota gömlu vélina hennar m. Foreldra mína má aðeins minnast með upphafsstöfum titils þeirra, það er að segja m & p. Nú, eða Faðir eða Móðir.

Pælið í hvað það er kjánalegt að kalla fólk sem er skylt manni einhverjum kjánalegum gælunöfnum... Ekki kalla ég bræður mína, Árna og Odd, Bróður 1 eða Bróður 2...

En um leið er kjánalegt að kalla á foreldra sína "Ingi!" eða "Guðrún!"

Mannskepnan, hahahahh....

 Þetta er nýja hetjan mín

Takk fyrir


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.04.2006 23:39:20 / dóradóra

Samvinna, fólk samvinna!

Nema teljarinn sé að ljúga, þá virðist ég vera með um 10-20 heimsóknir á dag.
Ég get ekki sagt að ég sé sátt við að fólk komi og fari á þess að skilja neitt eftir sig.
Þess vegna neita ég að blogga fyrren ég er komin með tuttugu koment frá ykkur sem asnast inná þessa síðu! ;)

Verið eins og Áshildur í samfestingnum! Verið VIRK! ;)
hahahahaahhaha, Hildur!

*Dóra opnar hjarta sitt fyrir sumarinu*

sæta fólk

» 1 hafa sagt sína skoðun

13.04.2006 19:53:51 / dóradóra

Góðir hálsar

og restin af búkum yðar....

Ég er að undirbúa meget stórt pælingarblogg um tónlist (surprise!) ég veit ekki hversu langan tíma það mun taka.

Meanwhile er ykkur frjálst að lesa um ævintýrin mín (hahahaahh) á hinni nýstofnuðu bloggsíðu http://www.blog.central.is/les-tartes

Þarna er ég í slagtogi við þann fríða flokk meyja; Tinnu, Hildi, Eyrúnu og Rakel!

Þetta er meget skemmtileg og awesome síða og verið svo dugleg að kommenta og kvitta í gestabókina.

Nú, eða nöldra ef það er eitthvað sem ykkur vanhagar um... i can take it! ;)

síjú leiter allígeiter :haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.04.2006 21:17:31 / dóradóra

Lágardagúr

Núna er ég með tvo stykki Svía heima hjá mér, tvær eldhressar stúlkur sem þrá ekkert heitar en að djamma á Íslandi. Ég bauð þeim að koma með mér og Arnari í partí en þær vilja fara núna strax á skemmtistaði. Ég ætti kannski að segja þeim að það byrjar enginn að djamma hérna fyrr en í fyrsta lagi á miðnætti.... Njeeeee.... Þær hafa heila viku hérna....

Er að spá í að senda þær á Nasa á Papatónleikana, eða á GrandRokk á SingaporeSling uppákomu....

Eitt enn, ég skil ekki nýju kókómjólkur auglýsinguna.... ég næ ekki boðskapnum....

Og hvað í andskotanum fór mikill álpappír í sviðsmyndina í Söngvakeppninni? hm?

gúrk, ég nenni ekki að blogga.... ég er með kvef og tala eins og Andrés Önd :haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.04.2006 23:13:40 / dóradóra

Svei

Nei, nú líð ég þetta sko ekki lengur. Þetta er bara misrétti af ykkar hálfu!

Ég heimta komment!

Þó þau séu ekki nema nokkur orð um hversu kjánaleg bloggin mínu eru orðin.

Svei, og þið kallið ykkur vini mína... ekki sátt EKKI sátt ;)

æj, þið eruð ágætis grey, þó mér finnist ég vera að tala við sjálfa mig á köflum.

Helgin var awesome, engin vinna og afmæli á laugardeginum (þó Haffi eigi ekki afmæli fyrr en .... 10.?) og yndislega rólegur sunnudagur. Með sundi, pulsu og simpsons.... mmmmmm.... það gerist varla betra

ég elska chillout sunnudaga.... og páskafrí!:haha:

um helgina var ég líka massa artí og samdi þungarokkslags.... það hljómar einhver veginn svona:

"BLEED MOTHER BLEED!!" "SATAN ER MEÐAL VOR!!" svo kemur awesome þríhornssóló með þríhorninu sem ég keypti í Tiger á laugardaginn: "ping" "ping" "ping" "ping" "ping" "ping" "ping" "ping" "ping" "ping" "ping" "ping" "ping" "ping" "ping" "ping"

Þetta á eftir að slá í gegn! Definitely...

Á laugardaginn er von á "Svíanum" eða "Helgu" eins og við Arnar kjósum að kalla hana, þó ég hafi ekki hugmynd um hvað stúlkan heitir í alvörunni... ég segi enn og aftur, greyið að vera á leiðinni að gista á þessu heimili....

HEY vó, augnablik, hvað sé ég.... jeremías minn!

Það er kominn nýr StrongBad þáttur!

150. þátturinn, hey ég er geðveikt hamingjusöm! :haha:

http://www.homestarrunner.com/sbemail.html

vesgú.... ég nenni ekki að vera með almennilegt blogg. Ég er í stórum dráttum búin að segja frá öllu sem er búið að ske... bráðum á ég eftir að byrja að segja frá hvað ég var að borða og álíka...

talandi um það... Það er byrjað að selja Willy Wonka súkkulaðistykki í 10-11 og Hagkaup! Fjárfesti í slíku í gærkvöldi þegar ég heimsótti Arnar í vinnuna og hjálpaði honum að raða í goskælinn.... já, ég á mér líf... það er ágætis að eiga líf....

Páskafrí eftir þrjá daga, og þá á Tinna (betur þekkt sem Partý-Tjeeeens) afmæli, gamla gamla... mahahaha :haha:

vi ses vi ses vi ses vi ses vi ses vi ses vi ses vi ses vi ses vi ses

Eftirskrift: Ég var að breyta síðunni, engar meiri háttar breytingar þó, en quite


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.03.2006 21:58:02 / dóradóra

helgi, ó helgi, ég bíð þín spennt!

Helgi er besti vinur minn, ég vil meina að hann sé karlkyns þó svo nafnið hans beygist kvenkyns

nf.   Helgin

þf.   Helgina

þgf. Helginni

ef.   Helgarinnar

Áhugaverðar pælingar hjá mér, vægast sagt...

Ég er rosalega stolt af mér fyrir að hafa lifað af fyrri hlutann á þessari viku...

Byrjaði á því að tjilla á mánudeginum, þó ég ætti að skila ritgerð um valbók í sænsku daginn eftir (sem ég var btw ekki búin að lesa). Byrjaði á henni klukkan tvö um nóttina (ég elska internetið, þar er hægt að finna allt) skrifaði til þrjú og fór þá að rökræða við Arnar um að hann ætti að snúa sér við í rúminu (hann svaf með höfuðið til fóta).

Dóra: "Arnar, vaknaðu og sofðu rétt í rúminu..."

Arnar: (steinsofandi) "mmuuulmmeeeeaaagmgghhhhmmuuuulllmnnniiiiigeeehd!!"

Dóra: "eh, já.... en þú átt samt að snúa þér við svo ég komist líka fyrir..."

Arnar: (ennþá steinsofandi) "Fhqwhgads...... mmmmmmmmmm......"

Dóra: "Það er svo mikill hávaði af þér, drengur"

Arnar: "NEI!" (hátt og skýrt, svo hélt hann áfram að sofa) Þessi elska ;)

jaaa, smá ýkjur, hann sagði ekki fhqwhgads, en ég meina, hver getur það? Fyrir utan StrongBad himself?

Svo ég víki nú aftur að horrible vikunni minni, þá fór ég í munnlegt próf úr ensku valbók, sem ég var heldur ekki búin að lesa (las hana reyndar smá í sumar, mjög góð bók) The Tenth Man eftir Graham Greene, fjandi góð, sem ég ætla að klára við tækifæri... Svo klukkan hálfeitt í gærkvöldi byrjaði ég á tveggja síðna ritgerð um "Líkamsdýrkun" sem ég skilaði í dag....

The Slacker's Guide to School.... og já, ég fékk 8 í frönsku (ehm, sem ég lærði varla undir) svo ég má halda áfram að láta eins og fáviti með Hildi í tímum... ahhh

8. apríl mun að öllum líkindum koma svo sem eitt stykki Svíi inn á heimilið mitt og hann verður í viku. Þetta er partur af sænskunáminu (og smá plús, því mér gengur illa í sænskunni útaf mætingu og þetta ætti að sleikja kennarann upp, finnst ykkur ekki?)

Greyið Svíinn að koma inn á mitt heimili, hahaha

eh, og greyið ég að þurfa að spjalla á sænsku alla þarnæstu viku...

vei

ég segi þetta gott....

Everybody! Everybody!


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.03.2006 17:11:08 / dóradóra

erm... hæ... aftur

Ég gat ekki staðist það að blogga ekki, sérstaklega þar sem ég var að skoða gamlar færslur og það var bara fyndið.... :haha:

Ég þoli ekki ritstíflur, sérstaklega þegar það er pressa á manni að skrifa....

mér er lífsins ómögulegt að koma frá mér orði um líkamsdýrkun. Ég er með allt heila klabbið í hausnum og hef mjög sterka skoðun á þessum hlutum, en það virðist stoppa einhversstaðar í fingrunum og ég kem engu frá mér.

Það sem verra er, er að ég á líka að lesa valbók í ensku og sænsku. Ég þoli ekki þegar maður er neyddur til að lesa einhverjar bækur. Sama hversu skemmtilegar þær eru þá dregur það alla ánægjuna úr lestrinum þegar maður þarf að fara í próf úr þeim.

The Tenth Man eftir Graham Greene er nefnilega mjög skemmtileg, allavega þegar ég las hana í sumar, en núna þegar ég þarf að lesa hana, langar mig engan veginn til þess.

Mig langar miklu frekar að lesa um ævintýri Andréasr í Syrpunum og sofa...

Þessi helgi var alltof stutt, er ekki frá því að það hafi verið svindlað á mér og sleppt einum degi eða svo... en næsta helgi er fríhelgi svo það er awesome...

Gærkvöldið var rólegt, kláraði að vinna um hálfeitt leytið, og þá var Hildur búin að gera svaka plan um að fara á Nasa, en ég er frekar blönk í augnablikinu svo það varð ekkert úr því....

Í staðinn kom Arnar og sótti mig og við fór í Mosó, sóttum kassagítarinn og keyrðum útí rassgat og kvöldið (sem reyndar var orðið að nótt) endaði með tónleikum...

...í sex stiga frosti.... ;)

Ég giska á að það væri góð hugmynd að halda áfram/byrja að læra þar sem ég á að mæta til vinnu eftir rúma tvo klukkutíma....


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Leitarbox